Örstutt um sögu Vífils
Skátafélagið Vífill var stofnað á sumardaginn fyrsta árið 1967, en þá þótti tími kominn til að að færa starfið alfarið inn í ört vaxandi bæjarfélag Garðahrepp, eins og bærinn hét þá. En stofnun félagsins var í raun, rökrétt framhald, af starfi skátasveitanna sem starfað höfðu innan Skátafélagsins Hraunbúa í Hafnarfirði.
Félagið starfaði fyrst í Flataskóla, og því næst í Goðatúni 3 í húsi sem í dag hefur verið jafnað við jörðu. Tímamót urðu árið 1969, þegar félagið festi kaup á húsinu við Hraunhóla 12.
Viðbygging var reist við húsið árið 1991 og reyndist húsið í alla staði frábærlega og hýsti alla félagsstarfsemi Vífils fram til ársins 2003.
Þá var tekið höndum saman með Hjálparsveit skáta og yfirvöldum í Garðabæ og reist ný skátamiðstöð við Bæjarbrautina. Húsið Jötunheimar er nú tilbúið og þvílík lyftistöng fyrir starfið .
Ekki er víst að allir Garðbæingar þekki vel til skátstarfs almennt, eða starfsins í Vífli. Ýmsir halda að aðalverkefni skátanna sé að ganga teinréttir og hátíðlegir í fasi með fána í skrúðgöngum á sumardaginn fyrsta eða á 17. júní og binda svo endalusa skátahnúta þess á milli. Því fer hins vegar fjærri að slíkar staðreyndavillur eigi við um starfið í Vífli !
Skátafundir, varðeldar, skátamót, útilegur og dagsferðir eru dæmigerð viðfangsefni skátanna í Vífli. Á skátafundum fer fram undirbúningur fyrir hin stærri verkefni, svo sem dagsferðir og útilegur. Í ýmsum ferðum og á skátamótum gefst skátunum svo tækifæri til að reyna á þekkinguna sem þeir hafa innbyrgt á skátafundunum. Ljóst er að útilífið er einn mikilvægasti þáttur skátastarfsins og í krefjandi fjallaferðum sem stundum hafa verið farnar með aðstoð Hjálparsveitarinnar hefur margur athafnasamur unglingurinn náð réttum áttum.
Ferðir á skátamót erlendis eru gjarnan á dagskrá og má nefna að nú stefna um 400 skátar frá Íslandi á alheimsmót í Englandi í sumarri og á Vífill um 20 þátttakendur af þeim. Á mótinu verða um 60 þúsund skátar alls staðar að og ljóst er að um mikið ævintýri er að ræða.
Skátafélagið Vífill hefur verið svo lánsamt að eiga eigin útileguskála í nágrenni við bæinn og hafa skálaútilegurnar verið einn af hornsteinum skátstarfsins í Garðabæ.
Auk skátafunda og útilífs og skátamóta eru ýmsir aðrir fastir liðir á dagskrá Skátafélagsins á hverju ári eins og hin sívinsælu Ævintýra- og útilífsnámskeið sem Vífill hefur verið með síðastliðin 18 sumur.
Ekki má svo gleyma smíðavellinum, þátttöku í sumarhátíðum skóla, sumardeginum fyrsta, skeytasölu, svo nokkuð sé nefnt.
Við skátar í Garðabæ erum stoltir af því að vera hlekkur í keðju öflugs æskulýðsstarfs sem byggir hugmyndir sínar jafnt á hugmyndinni um virka þátttöku, því í skátaflokknum er hver einasti skáti mikilvægur hlekkur í starfi flokksins og félagsins.
Nú eftir að hafa verið fyrsta skátafélagið sem hefur fengið viðurkenninguna ”Fyrirmyndarfélag Bandalags íslenskra skáta” erum við auðvitað enn stoltari !
