Skátastarf

Hvað gera skátar

Skátar hittast almennt vikulega á fundum og vinna í hópastarfi að margþættum verkefnum, taka þátt í útilífi og alþjóðlegu skátastarfi. Hvort sem það er gönguferð, varðeldur, næturleikur, hellaferð, ging gang gulli gulli, hnútakennsla, tjaldútilega, skátaheiti, útieldun, skátastarf á Netinu, rikk tikk rikka tikka tikk, fánaathöfn, skálaskoðun, skátamerki, skátavígsla eða kakó og kex þá er það ómissandi þáttur af skátastarfinu.

Hvernig get ég orðið skáti?

Best er að ganga til liðs við skátana að hausti því þá auglýsa þeir sérstaka innritunardaga. En að sjálfsögðu getur þú byrjað á öðrum árstímum. Ekki gleyma að þú þarft leyfi frá foreldrum þínum til þess að taka þátt í skátastarfi líkt og öðru tómstundastarfi. Nánari upplýsingar um starfið færðu síðan á skrifstofu Vífils í síma 565-8820 eða með tölvupósti á vifill(hjá)vifill.is

Veldu þá undirsíðu sem að henntar þínum aldri til að sjá frekari upplýsingar

Drekaskátar

Drekaskátar, 7-9 ára
Lí­fið er ævintýri

Starfsvettvangur Drekaskáta er þéttbýlið, lí­f í­ borg og bæ. Drekaskátar læra að þekkja umhverfi sitt, hættur í­ daglegu lí­fi og rétt viðbrögð við þeim. Lögð er áhersla á ævintýrið, hjálpsemina, glaðværðina og umgengni um náttúruna.

Fálkaskátar

Fálkaskátar, 10 – 12 ára
Hið ókannaða

Starfsvettvangur: Láglendið – tjaldbúðin. Hér fær ævintýraþráin frekari útrás og nýjar slóðir kannaðar. Í fjölbreyttum verkefnum er lögð áhersla á útilí­fið ásamt félagslyndi, hópefli, samvinnu og hreyfingu.

Tvær fákaskátasveitir eru starfandi í félaginu. Fornmenn fyrir strákana og Forynjur fyrir stúlkurnar.

Dróttskátar

Dróttskátar, 13 – 15 ára
Saman

Starfsvettvangur: Heiðin og fyrstu kynni af fjallamennsku. Sjálfstæðið eykst og verkefnin verða meira ögrandi. Nefna má gönguferðir, næturleiki, útieldun, og frumraun í­ fjallamennsku – allt í­ hópi jafningja sem marka leiðina saman.

Rekkaskátar

Rekkaskátar, 16 – 18 ára
Farðu alla leið

Starfsvettvangur: Hálendið allan ársins hring. Nú er stefnan sett alla leið og er Forsetamerkið lokatakmarkið. Rekkaskátar njóta lí­fsins í­ fjölbreyttri náttúru með vinum. Verkefnin eru margví­sleg, krefjandi útilí­f, alþjóðastarf, og markviss leiðtogaþjálfun.

Róverskátar

Róverskátar, 19 – 22 ára
Ferðin

Starfsvettvangur: Heimurinn allur. Róverskátar hafa heiminn í­ hendi sér. Ferð þeirra ræðst nú alfarið af áhugamálum þeirra sjálfra. Róverskátar velja sinn starfsvettvang sjálfir hvort sem það er foringjastarf, starf með björgunarsveit, í sjálfboðaliðastarf í­ Afrí­ku eða annað, – allt í­ frábærum félagsskap. Leiðtogaþjálfun skátahreyfingarinnar skilar sér í­ frumkvæði, sjálfstæði og vináttu í­ raun.

Ekki er starfandi róversveit í Vífli en margir foringjar félagsins eru á Rover aldri.

 

Comments are closed.