Drekaskátar

Drekaskátar verða starfræktir í vetur eins og áður. Þetta starf er fyrir krakka á aldrinum 7-9 ára (fædd 2002-2004). Drekaskátar taka við af ylfingasveitum í nýrri dagskrá Bandalags Íslenskra skáta.

Dagskrá Drekaskáta byggist á fundum einu sinni í viku í eina og hálfa klukkustund í senn. Þessir fundir eru svo brotnir upp með fjölbreittum dagsferðum sem farnar eru bæði á fundardögum og um helgar eða á öðrum dögum.

Farið er tvisvar í það sem við köllum “Flokkafjör” og er í raun undirbúningur fyrir félagsútileiguna. Flokkafjör eru haldin í skátaheimilinu, eina nótt og er dagskráin fjölbreitt og þjálfar það þessa yngstu skáta í að vera að heiman yfir nótt. Flokkafjörin eru tvisvar fyrir jól og einu sinni eftir jól. Svo er farið í félagsútilegu.

Hópunum er skipt eftir eldri og yngri, í sumum tilfellum eru þeir sem eru með reynslu, í eldri sveitinni þó aldurinn vanti.

Reyndir foringjar stýra Drekaskátum hjá félaginu.

Hjá eldri drekum eru það Brynjar Smári Alferðsson og Dögg Gísladóttir, sveitarforingjar og Gréta   aðstoðarsveitarforingi

Hjá yngri drekum eru það Daníel Grétarsson og Thelma Rún Van Erven og Rúnar Kjartanson aðstoðarsveitarforingi.

Drekaskátar – Furðufuglar

Veturinn 2011 – 2012

Fundartími:
Þriðjudaga kl.17.00 til 18.30

Comments are closed.