Dróttskátastarfið er fyrir krakka á aldrinum 13-15 ára (fædd 1996-1998). Ólíkt yngri sveitum starfa kynin saman í Dróttskátunum. Unnið er í flokkum en formerki þeirra og umgjörð er gjarnan lausari en áður. Þannig geta meðlimir mismunandi flokka verið að vinna að sameiginlegum verkefnum. Hjá Vífli starfar nú dróttskátasveitin Ds. Fenris.
Starfið snýst að miklu leyti um útivist og ferðalög, undirbúning þeirra og framkvæmd. Þessar ferðir eru allt frá því að vera dagsferðir upp í það að vera langar utanlandsferðir. Þetta krefst agaðra vinnubragða og skipulagningar enda ekki hlaupið að því að fara með stóran hóp til fjarlægra landa.
Vífill stefnir að því að fara í utanlandsferð a.m.k. annað hvert ár en þetta mun að sjálfsögðu krefjast mikils af Dróttskátum bæði nú og í framtíðinni.
Dróttskátasveitin Fenris fundar á mánudögum kl. 19.30-21.30
Sveitarforingjar eru Hjálmar Hinz og Hildur Hafsteinssdóttir, sveitarforingjar og Kristín, Guðrún Þórey og Haukur steinn aðstoðar sveitarforingjar
Það er aldrei of seint að bætast í þennan flotta hóp og eina sem þarf að gera er að mæta.
