Fálkaskátar eru skátar á aldrinum 10 – 12 ára (fæddir 1999-2001). Fálkaskátar starfa í kynskiptum sveitum en í Vífli eru bæði stráka og stelpusveit.
Sveitunum er skipt í flokka sem eru aldursblandaðir en þá lifa flokkarnir meðlimi sína þegar þeir fara á milli aldursstiga og eiga sér langa sögu sem krökkunum finnst gaman að kynnast og verða hluti af.
Verkefni Fálkaskáta eru fjölbreytt. Þó má segja að starfið snúist að mestu um útivist, skipulag hennar og framkvæmd. Það er þó ekki þar með sagt að flestir geti ekki fundið eitthvað við sitt hæfi í skátastarfinu.
Starfið hjá Fálkaskátum skiptist í flokksfundi og sveitarfundi. Fundirnir eru allir tveir tímar að lengd og haldnir einu sinni í viku. Á flokksfundum sinnir hver flokkur (4-6 manna hópar) verkefnum sem hann hefur valið í samráði við sveitarforingja. Þessi verkefni eru bæði mis viðamikil og mis krefjandi. Þau eiga það þó sameiginlegt að vera verkefni sem flokkurinn hefur tekið ákvörðun um að vinna saman. Þessi ákvarðanataka er rauður þráður í starfi skáta enda er það byggt upp á samvinnu. Á sveitarfundum leggja sveitarforingjar gjarnan til efni. Þessir fundir eru oft í formi ferða en geta líka verið með hefðbundnu sniði eða jafnvel í formi póstaleikja eða ratleikja. Fundirnir eru bæði notaðir til að meta árangur flokkastarfsins en líka til að gefa skátunum tækifæri á að leysa ýmis verkefni sem krefjast stærri hópa en flokks. Í hverri sveit eru þrír til fimm flokkar og því geta verið alla að 30 skátar í sveitinni. Þessi fjöldi getur því gefið tækifæri til ýmissa verekfna s.s. stórleikja, flokkakeppna eða góðrar kvöldvöku.
Skátafundir eru á miðvikudögum hjá Fornmönnum (strákar) kl. 17:00 – 19:00. Sveitarforingjar Fornmanna eru Vigdís Björk Agnarsdóttir og Guðmundur Finnbogason. Aðstoðarforingjar eru Kristján Andri Gunnarsson og Pálmi.
Skátafundir eru á þriðjudögum hjá Forynjum (stelpur) kl 16:30 – 18:30.
Foringjar Forynja eru Hrafnhildur Sigurðardóttir
Aðstoðarforingjar eru Alexandra og Salbjörg

