Skátafélagið Vífill

Ratleikur í tilefni af sumardeginum fyrsta! 🌞💐

Skátafélagið Vífill sendir öllum skátum sumarkveðjur í tilefni sumardagsins fyrsta.Í ár falla hátíðarhöldin okkar niður, en þess í stað bjuggum við til skemmtilegan ratleik með verkefnum á víð og dreif um bæinn fyrir skáta og aðstandendur.

Ratleikurinn er unnin í snjallsímum í gegnum smáforritið „Actionbound“ og hægt er að hlaða því niður bæði fyrir Android og iOS, hér er hlekkur á leikinn; https://actionbound.com/bound/ratleikur-vifils

Hlökkum til að sjá niðurstöður frá ykkur.

Skátakveðjur og gleðilegt sumar!
🌞💐Skátafélagið Vífill