Skátafélagið Vífill

19 – 22 ára

Skátar á aldrinum 19-22 ára nefnast róverskátar.

Róverskátar nefnist elsta aldursbil þátttakenda í skátastarfi um víða veröld. Aldursbilið er ekki bara alþjóðlegt að fyrirmynd heldur er starf róverskáta einnig alþjóðlegt og tækifærin í alþjóðastarfi á vegum skátahreyfingarinnar gífurlega mörg. Róverskátar sinna flestir einhverjum ábyrgðarstöðum ýmist innan skátafélaganna eða á breiðari vettvangi skátahreyfingarinnar á Íslandi. Markmið skátastarfs er að valdefla ungmenni og þannig gefst róverskátum færi að spreyta sig á verkefnastjórnun, viðburðahaldi, stjórnarsetu og ýmsum öðrum spennandi tækifærum sem bjóðast sjaldnar utan skátastarfs. 

Á róverskátaaldri eru skátar orðnir færir um að hrinda öllum sínum hugmyndum í framkvæmd, sama hvort þær snúi að þeirra eigin starfi eða annarra og til þess hafa róverskátar eins greiðan aðgang sem og að aðbúnaði skátahreyfingarinnar. Í róverskátunum er félagskapurinn alþjóðlegur, viðfangsefnin krefjandi, getan gífurleg og tækifærin því endalaus. Fjölmargir hefja skátastarf ekki fyrr en á róverskátaaldri þrátt fyrir að hafa aldrei tekið þátt í skátastarfi áður og fyrir þeim opnast nýr heimur ævintýra og upplifana. Róverskátar hittast reglulega yfir árið samkvæmt samkomulagi.

Vilt þú vera með?

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í skátastarfi eða leggja starfinu lið með einhverjum hætti ættirðu að smella á okkur línu á vifill@vifill.is eða bara líta við í skátaheimilinu við Bæjarbraut 7 í Garðabæ.