Hægt er að leigja vel útbúinn og fallegan sal í Skátaheimili Vífils, Jötunheimum. Salurinn hentar vel til hvers kyns funda- og veisluhalda. Hægt er að leigja salinn jafnt að degi til og á kvöldin en um helgar verður veislum að vera lokið kl. 22.00! Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á salur(hjá)vifill.is
Salurinn er fullbúinn með borðum og stólum fyrir allt að 100 manns.
Honum fylgir vel útbúið móttökueldhús með stórri uppþvottavél og borðbúnaði fyrir 150-200 manns. Salurinn er útbúinn hljóðkerfi, skjávarpa og tölvu.
Starfsmaður frá Vífli þarf alltaf að fylgja salnum en greitt er sérstaklega fyrir hann. Best er að hafa samband við umsjónarmann salarins með tölvupósti á salur(hjá)vifill.is.
Verðskrá:
Veisla, heill dagur 45.000 kr. 10.000 kr. staðfestingargjald greiðist við pöntun og lokagreiðsla þarf að berast eigi síðar en 4 vikum fyrir leigu.
Fundur virka daga ca. 1- 3 klst. 15.000 kr. 5.000 kr. staðfestingargjald greiðist við pöntun og lokagreiðsla þarf að berast viku fyrir leigu.
Hægt er að leigja dúka á salinn f. 5000 kr.
Starfsmanni er greitt tímakaup.
