Skátarnir fást við margvísleg viðfangsefni á drekaskátaaldri. Þá einbeita skátarnir sér að mestu leyti að leikjum og skemmtilegum verkefnum sem styrkja ýmsa dýrmæta eiginleika svo sem traust, þolinmæði, samvinnu, samkennd og sjálfsbjargarviðleitni. Á þessum yngstu árum í skátastarfi öðlast skátarnir grunn í allskyns færni sem þau skerpa enn fremur á efri aldursbilum. Þrátt fyrir ungan aldur eru skyndihjálp, útieldun, rötun, náttúruvitund og útivera í ýmsum aðstæðum á meðal þess sem drekaskátar fá að reyna.
Drekaskátasveitin hittist vikulega og hægt er að velja á milli þriðjudaga eða fimmtudaga frá kl. 17:00 til 18:30. Einnig fara drekaskátar reglulega í dagsferðir og styttri leiðangra.
Dagskráin er fjölbreytt yfir árið en tekur iðulega mið af áhuga og getu hópsins ásamt árstíð hverju sinni. Á þessum vikulegu fundum kynnast skátarnir sífellt betur og öðlast smám saman færni til að takast á við stærri áskoranir.
Einkenni Drekaskáta
Klútur
Drekaskátar ganga með gulan klút. Aftan á klútinn eru sett merki drekaskáta. Drekaskátar fá að jafnaði eitt merki við upphaf hvers starfsárs og ganga einungis með eitt merki á klútnum sínum.
Gull-, silfur- og bronsmerki
Skráning í drekaskátana
Skátafundir drekaskáta eru á þriðjudögum eða fimmtudögum kl. 17:00-18:30
Skáti hefur val á milli tvo daga og getur því miður ekki valið báða dagana.
Skráning fer fram hér