Foreldrafundur
Boðað er til foreldrafundar miðvikudaginn 19. október kl. 20:00í Jötunheimum . Á fundinum verður kynnt ferð félagsins á landsmót skáta næsta sumar sem fer fram dagana 20. júlí til 29. júlí. Að þessu sinni verður haldið upp á 100 ára afmæli skátastarfs á Íslandi. Landsmót er einn af hápunktum í starfinu þar sem koma saman skátar af öllu landinu og frá fjölmörgum þjóðlöndum.
Flokkafjör
Dagana 21. – 22. október verður haldið flokkafjör í Jötunheimum. Í flokkafjöri koma saman dreka- ,fálka- og dróttskátar og gista eina nótt í skátaheimilinu. Mæting er í skátaheimilið kl. 18:00 á föstudeginum og fjörinu lýkur kl. 13:00 á laugardeginum. Dagskráin er skipulögð af sveitunum og verður kynnt frekar í næstu viku. Engin kostnaður er við flokkafjörið og er kvöldmatur, morgunmatur og hádegismatur innfalinn. Skráning fer fram hér




