Virkni og þátttaka er galdurinn í skátastarfi. Það eru nefninlega skátarnir sjálfir sem ákveða hvað gert er. Skátar fara í útilegur og ferðalög, klífa fjöll, leika leikrit, sigla á kajökum, tálga, syngja, dansa og byggja snjóhús. Þeir öðlast reynslu í að skipuleggja sitt eigið skátastarf sem byggir á gildum skátanna.
Vetrarstarf skátafélagana er að fara af stað þessa dagana. Vilt þú vera með? Það er auðvelt að byrja í skátunum. Það fá allir að vera með.
Skráning er í gegn um vefinn: www.skatamal.is og skráningarkerfið Nóra:
Leiðbeiningar fyrir nóra
- Farðu á https://skatar.felog.is/
- Haka við „samþykkja skilmála“
- Smella á Íslykil skráargat
- Skrá sig inn með rafrænu auðkenni eða íslykli
- Smella á Námskeið og flokkar í boði (fyrir aftan nafn iðkanda)
- Velja námskeið
- Velja greiðslumáta (greiðsluseðill eða kreditkort)
- Haka við „samþykkja skilmála“
- Smella á staðfestingarsíða
- Skrá greiðslur og að lokum staðfesta
Skráningarleiðbeiningar-ág17