Skátafélagið Vífill

Skátafélagið Vífill óskar eftir starfskrafti

Skátafélagið Vífill óskar eftir starfskrafti í hlutastarf.
Við leitum að jákvæðum, glaðlyndum og skipulögðum einstaklingi sem er tilbúin að sjá um innkaup í starfi með börnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Innkaup og utanumhald fyrir húsnæðið
Stuðningur og samskipti við foringja og stjórn félagsins
Skipulag og bókanir fyrir viðburði á vegum félagsins

Menntunar- og hæfniskröfur:
Hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af skipulagi og utanumhaldi á verkefnum er kostur
Reynsla af skátastarfi er kostur
Bílpróf

Starfshlutfall er 40%, og er vinnutími 17-19, mánudaga – fimmtudaga
Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri
Sakavottorðsheimildar er krafist
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið með því að senda póst á stjorn@vifill.is

Nánari upplýsingar:
Valdís Huld Jónsdóttir – vjonsdottir9@gmail.com – 777-9991
Urður Björg Gísladóttir – urdurbjorg@gmail.com – 821-0939