Innilega Fálkaskáta
Það var mikið stuð í Jötunheimum um liðna helgi þar sem fálkaskátar héldu flokkainnilegu í skátaheimilinu. Þau meðal annars spiluðu, bökuðu pizzu, horfðu á bíómynd og skemmtu sér stórkostlega!
Innilega Fálkaskáta Read More »
Það var mikið stuð í Jötunheimum um liðna helgi þar sem fálkaskátar héldu flokkainnilegu í skátaheimilinu. Þau meðal annars spiluðu, bökuðu pizzu, horfðu á bíómynd og skemmtu sér stórkostlega!
Innilega Fálkaskáta Read More »
Drekaskátar reyndu á veiðihæfnina á skátafundi í dag og fóru niður að læk og reyndu að veiða síli. Það var ekki mikið sem kom í netið, en drekaskátarnir skemmtu sér vel.
Sílaveiði drekaskáta Read More »
Drekaskátar voru með drekaþing í dag þar sem þau ákváðu hvað þau ætla að gera í næsta dagskrárhring. Þau komu með hugmyndir og kusu svo með handauppréttingum hvað þeim langaði mest að gera. Þegar kosningum var lokið fóru þau út í leiki í góða veðrinu.
Fálkaskátar fóru í sveitarútilegu um helgina í Vífilsbúð. Skátarnir settu saman dagskrá fyrir útileguna og ákváðu matinn og elduðu hann sjálf. Þau kynntu sér færnimerkin, spiluðu, byggðu snjóhús og margt fleira. Nokkrir fálkaskátar gistu svo í tjaldi eina nótt!
Sveitarútilega Fálkaskáta Read More »
Drekaskátar fóru í dagsferð í Heiðmörk í dag og buðu með sér foreldrum og systkinum. Fyrst var farið í Maríuhella þar var einn skáti vígður inní sveitina og einn skáti fékk nýtt ársmerki. Síðan var grillað hikebrauð, pulsur og sykurpúðar og leikið í snjónum.
Dagsferð drekaskáta í Heiðmörk Read More »
Drekar voru með útieldun á fundinum sínum. Þau eru búin að vera að vinna að færnimerkinu Neisti. Þau lærðu á síðasta fundi um hvernig eigi að nota eldspýtu til að kveikja eld, að þekkja hætturnar sem skapast við opinn eld og hvernig skal haga sér í kringum eld. Á fundinum í dag fóru þó svo
Útieldun drekaskáta Read More »
Dróttskátarnir fóru í dagsferð síðastliðinn laugardag. Skátarnir fóru uppí Hvalfjörð og gengu langleiðina upp að Glym, þeir komust ekki alla leiðina vegna veðurskilyrða. Þrátt fyrir það voru skátarnir mjög ánægðir með daginn.
Dagsferð dróttskáta Read More »
Drekaskátasveitin Furðufuglar bjó til sveitarkassa á fundinum sínum í dag. Í kassann ætla þau að setja allskonar hluti sem þau nota á fundum eins og kertið sem þau nota til að slíta fundum, penna, vinabönd, bönd fyrir hnúta og jafnvel fundarefni dagsins. Drekaskátarnir teiknuðu svo myndir af furðufuglum til að skreyta kassann.
Sveitarkassi drekaskáta Read More »
Foringjar hittust í dag og skipulögðu skátastarfið fyrir vorönnina. Skátafundirnir byrja svo í næstu viku;Mánudaginn 7. janúar byrja dróttskátar kl. 20.-22. Þriðjudaginn 8. janúar byrja drekaskátar kl. 1730.- 1830.Miðvikudaginn 9. janúar byrja fálkaskátar kl. 17. – 19. Hlökkum til að sjá ykkur!
Skipulagsfundur Foringja Read More »
Fálkaskátar héldu síðasta fundinn sinn fyrir jól í seinustu viku. Þau skelltu sér á skautasvellið á Ingólfstorgi, skátarnir skautuðu þónokkra hringi á svellinu og fengu sér kakó.
Skautafundur Fálkaskáta Read More »