Skátafélagið Vífill

Forsíðukynning – vinstri

Lokahóf sumarstarfs og upphaf vetrarstarfs

Lokahóf sumarstarfs og upphaf vetrarstarfs skátafélagsins Vífils verður þriðjudaginn 27. ágúst í skátaheimilinu Jötunheimum við Bæjarbraut frá kl 17.00 – 19.00 Núverandi skátar endurnýja skráningu sína og nýir félagar eru boðnir velkomnir. Þátttakendur á sumarnámskeiðum Vífils eru sérstaklega velkomnir á hátíðina ásamt foreldrum/forráðamönnum sínum og systkinum. Á lokahófinu gefst tækifæri til þess að kynnast félagsstarfinu, […]

Lokahóf sumarstarfs og upphaf vetrarstarfs Read More »

Fjölskylduferð Vífils

Farið var í fjölskylduferð Vífils um liðna helgi. Skátar úr Vífli buðu með sér foreldrum og systkinum. Gengið var Búrfellsgjá í Heiðmörk að Kaldárseli með viðkomu í Valabóli þar sem grillaður voru pylsur og sykurpúðar yfir opnu eldi. Allir voru ánægðir en margir þreyttir eftir ævintýranlega göngu um útivistarparadís Garðabæjar!

Fjölskylduferð Vífils Read More »

SUMARNÁMSKEIÐ VÍFILS

Hvort sem þú ert upprennandi hallarsmiður, ævintýraþyrstur unglingur eða ungur útilífsunnandi, þá er í það minnsta óhætt að fullyrða að sumarið í Garðabæ sé ein stór barnahátíð! Skátafélagið Vífill er öflugt skátafélag sem heldur úti skemmtilegu skátastarfi yfir sumartíma jafnt sem vetrartíma. Í júní og júlí verða Ævintýra- og Smíðanámskeið og í ágúst verður Ævintýranámskeið.

SUMARNÁMSKEIÐ VÍFILS Read More »

Sumardagurinn fyrsti

Hátíðahöld verða í Garðabæ á Sumardaginn fyrsta , þann 25 apríl nk. Hátíðarhöldin eru í umsjá Skátafélagsins Vífils líkt og fyrri ár. Skátamessa kl. 13 og skrúðganga kl. 14Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ hefst með skátamessu í Vídalínskirkju kl. 13:00. Allir eru velkomnir en hér gefst tækifæri til að upplifa annars konar messu með hátíðlegu skátasniði. 

Sumardagurinn fyrsti Read More »