Skátafélagið Vífill

Fjölskyldudagur Vífils 9.9.2018

Skátafélagið Vífill býður til fjölskyldudags sunnudaginn 9. september í Jötunheimum. Allir eru velkomnir á opið hús frá klukkan 13.00-16.00 þar sem skátastarfið verður kynnt.
Hægt verður að prófa kassaklifur, ýmsar skátaþrautir og útieldun. Einnig verður boðið upp á kaffi, kakó og kleinur.
Skátaforingjar Vífils verða á svæðinu og geta svarað öllum spurningum um skátastarfið.
Skátafundir hefjast í vikunni 10.-14. september og eru fundartímar eftirfarandi ;
Drekaskátar (7-9 ára). Þriðjudagar kl. 17:00-18:30
Fálkaskátar (10-12 ára). Miðvikudagar kl. 17:00-19:00
Dróttskátar (13-15 ára). Mánudagar kl. 20:00-22:00
Rekkaskátar (16-18 ára). Fimmtudagar kl. 20:00-22:00
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Með skátakveðju,
Stjórn og foringjar Vífils