Skátafélagið Vífill

Sumarnámskeið Vífils

Skráning fer fram HÉR og er opin

Hvort sem þú ert upprennandi hallarsmiður eða ungur útilífsunnandi, þá er í það minnsta óhætt að fullyrða að sumarið í Garðabæ sé ein stór barnahátíð! Skátafélagið Vífill er öflugt skátafélag sem heldur úti skemmtilegu skátastarfi yfir sumartíma jafnt sem vetrartíma. Í júní, júlí og ágúst verða Ævintýra- og Smíðanámskeið.

Nánari upplýsingar http://vifill.is/sumar/ eða ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að senda okkur erindi á sumar@vifill.is eða hafa samband í síma 899-0089.