Skátafélagið Vífill

Viltu koma í skátana?

Vetrarstarfið í Vífli er hafið og Jötunheimar og nágrenni þess við Bæjarbraut hafa glæðst lífi og leik að loknu sumarfríi. Við bjóðum fleiri skáta velkomna í Vífil.

Skráning er opin fyrir drekaskáta (7-9 ára) á fimmtudögum og fyrir fálkaskáta (10-12 ára) á mánudögum. Skráning fyrir 13 ára og eldri er líka opin.

Lokað hefur verið fyrir skráningu drekaskáta á þriðjudögum og fyrir fálkaskáta á miðvikudögum. Ef spurningar vakna er velkomið að hafa samband, vifill@vifill.is.