Skátafélagið Vífill

Hlökkum til að sjá ykkur á sumardaginn fyrsta ☀️

Hittumst í undirbúningi á fimmtudaginn kl.11:00-13:00 í Miðgarði þar sem við röðum upp sjoppu, drögum fram hoppukastala og gerum allt klárt fyrir bæjarhátíðina. 

Hvetjum alla skáta að taka þátt í sumardeginum fyrsta. Fálkaskátar og eldri úr geta fengið greitt fyrir sína þáttöku og ef þau taka fullorðin aðstandenda með er hægt fá greitt tvöfalt. (Max 1 aðstandand á skáta) en fleiri mega koma að hjálpa til. 

Svo að hægt sé að greiða úr fjáröfluninni þá er mikilvægt að skrá upplýsingar hér: https://docs.google.com/forms/d/1drfz71Ggb9d_tPJz6upkIw977vWGZk_1eI9VRHImhG0/edit 

Svo er farið í skrúðgöngu kl 14:00 frá Hofstaðaskóla og í Miðgarð. Endar á því að lúðrasveitin spilar nokkur lög og þá finna skátarnir Signýju Hlíf og fá úthlutuð vaktaplan þar sem þau dreifast á sjoppu, klifur, hoppukastala og veltibíl. Dagskrá er til kl.17:00 og þá yfirgefa gestir salinn en skátar sem aðstoða við daginn fá að fara í hoppukastala og klifur. Gengið er frá eftir það og endað daginn í Binnaborgurum kl.18:00 fyrir skáta og alla sem hjálpuðu til við daginn.

Hvetjum foreldra að taka þátt í deginum!

11:00 – 13:00 Undirbúningur í Miðgarði

Setja upp sjoppu

Raða upp hoppuköstulum

Klifurbelti og hjálmar

14:00 Skrúðganga frá Hofsstaðaskóla í Miðgarð

  • Fánborg 
  • Lúðrasveit 

14:30 Mæting í Miðgarð og lúðrasveit spilar

15:00 Skemmtiatriði byrja og dagskrá

  • Hoppukastalar 
  • Sjoppa
  • Veltibíllinn 
  • Klifur

17:00 Frjálst fyrir skáta að hoppa í hoppuköstulum og klifra

17:30 Frágangur hefst

18:00 Binnaborgarar