Skátafélagið Vífill

Dagsferð drekaskáta

Drekaskátar fóru í dagsferð í Heiðmörk um liðna helgi og buðu með sér foreldrum og systkinum.
Það var mikið fjör, drekaskátarnir og gestir könnuðu umhverfið sitt þar sem margt er að sjá í Heiðmörk og grilluðu svo sykurpúða yfir opnum eldi.