Skátafélagið Vífill

Sumardagurinn fyrsti

Hátíðahöld verða í Garðabæ á Sumardaginn fyrsta , þann 25 apríl nk. Hátíðarhöldin eru í umsjá Skátafélagsins Vífils líkt og fyrri ár.

Skátamessa kl. 13 og skrúðganga kl. 14
Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ hefst með skátamessu í Vídalínskirkju kl. 13:00. Allir eru velkomnir en hér gefst tækifæri til að upplifa annars konar messu með hátíðlegu skátasniði. 

Skrúðganga fer frá Vídalínskirkju kl. 14:00 en gengið er að Hofsstaðaskóla þar sem hátíðahöldin fara fram og standa fram eftir degi. 

Hátíðardagskrá við Hofsstaðaskóla kl. 14:30
Við Hofsstaðaskóla verður boðið upp á skemmtidagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, t.d. ýmis leiktæki, kassaklifur, veltibílinn. Blásarasveit Tónlistarskólans spilar og Ronja Ræningjadóttir syngur. Þá sýna nemendur úr FG atriði úr söngleiknum Clueless.


Auk þess verður hið víðfræga kökuhlaðborð í Hofsstaðaskóla þar sem fjölskyldan getur sest niður og gætt sér á dýrindis veitingum.