Skátafélagið Vífill

Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ

Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ 2017

Sumarkomunni verður fagnað hér í Garðabæ á sumardaginn fyrsta 20 apríl n.k. Hátíðahöldin eru sem fyrr í umsjá skátafélagsins Vífils og er þess vænst að sem flestir bæjarbúar taki þátt í þeim og efli þar með bæjarbrag og styrki gott samfélag. Dagskráin er með hefðbundnu sniði og fastir liðir eins og skrúðganga og skemmtidagskrá einkenna hana.

Skátamessa í Vídalínskirkju kl. 13.00

Skátafélagið hefur tekið þátt í guðsþjónustu í kirkjunni á sumardaginn fyrsta í tæp 50 ár. Sr. Friðrik Hjartar þjónar og Skátakórinn syngur. Hátíðarræðu flytur Ágúst Þorsteinsson fyrrverandi skátahöfðingi og fyrsti félagsforingi Vífils. Guðbjörg Lilja Sveinsdóttir flytur ávarp. Skátar lesa upp og veittar verða viðurkenningar.

Skrúðganga frá Vídalínskirkju

Skrúðganga leggur af stað að lokinni skátamessu um kl. 14.00. Gengið verður frá Vídalínskirkju, niður Hofsstaðabraut, eftir Bæjarbraut að Hofsstaðaskóla. Skátar sjá um fánaborg og Blásarasveit tónlistarskólans um göngutakt.

Dagskrá við Hofsstaðaskóla

Við Hofsstaðaskóla leikur Blásarasveitin nokkur lög og að því loknu hefst fjölbreytt skemmtidagskrá. Bjarni töframaður skemmtir. Nemendur í Sjálandsskóla flytja atriði úr Bláa hnettinum. Gestir geta prófað veltibílinn, hoppað í hoppukastala eða farið í kassaklifur og aðrar skátaíþróttir. Opin verður sjoppa og skátar á leið til Noregs á skátamót selja kandíflos og poppkorn í fjáröflunarskini.

Skátakaffi og kökuhlaðborð

Í samkomusal Hofsstaðaskóla verður kaffisala og skátatertuhlaðborð. Þar koma fjölskyldur úr bænum saman, fagna sumarkomunni og styrkja um leið skátastarfið. Skátafélagið fagnar 50 ára afmæli sínu einmitt þennan dag og því er tilvalið að stofna til endurfunda eldri skátaflokka og skátasveita í kaffihúsastemmingu. Kaffihlaðborðið kostar 1800 kr. fyrir fullorðna og 1000 kr. fyrir börn 6 – 12 ára.

Sjáumst á sumardaginn fyrsta!