Skátafélagið Vífill

SUMARNÁMSKEIÐ VÍFILS

Hvort sem þú ert upprennandi hallarsmiður eða ungur útilífsunnandi, þá er í það minnsta óhætt að fullyrða að sumarið í Garðabæ sé ein stór barnahátíð! Skátafélagið Vífill er öflugt skátafélag sem heldur úti skemmtilegu skátastarfi yfir sumartíma jafnt sem vetrartíma. Í júní, júlí og ágúst verða Ævintýra- og Smíðanámskeið.


Ævintýranámskeið (7-12 ára)
Farið er í ýmsar ferðir í nágrenni skátaheimilisins. Meðal annars í hellaferðir, veiðiferðir, fjöruferðir, fjallgöngur, hjólaferðir og margt fleira. Börnin kynnast náttúrunni og læra að vera viðbúin þeim áhættuþáttum sem finnast í nútímaþjóðfélagi ásamt því að fara í þroskandi og uppbyggilega leiki.
Smíðavöllur (7-12 ára)
Á námskeiðinu fá börn að byggja leikkofa eða garðhús auk þess sem námskeiðið er brotið upp með leikjum o.fl. Við lok námskeiðsins geta börnin tekið kofana með heim ef þau vilja. Smíðavellirnir hafa vera sérstaklega vinsælir undanfarin ár og aðsóknin oft verið meiri en hámarksfjöldi býður upp á. Til að tryggja pláss á námskeiði er því best að skrá smiði framtíðarinnar sem fyrst.


Upplýsingar:
• Starfssvæði sumarnámskeiða Vífils er í og við Jötunheima, Bæjarbraut 7 í Garðabæ.
• Námskeiðin eru frá kl. 9-16.
• Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti klæddir eftir veðri og með nesti fyrir daginn þar sem dagskráin er öll utandyra. Gott er að eiga þurra sokka og aukabuxur í töskunni.
•Nauðsynlegt er að þáttakendur hafi hjól til umráða og hafi ágæt tök á því að hjóla þar sem hjólaferðir eru á dagskrá.
• Þátttökugjöld kr. 13.000 fyrir vikuna skal greiða við skráningu. Innifalið í verði er öll dagskrá og ferðakostnaður. Efniskostnaður smíðavallar er innifalinn í þátttökugjaldi. Skráning fer fram á; https://skatar.felog.is/ og opnar fyrir skráningu 24. apríl.
• Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að senda okkur erindi á sumar@vifill.is eða hafa samband í síma 899-0089.
Námskeiðsvikur:
• Ævintýranámskeið 1. 15.-19. júní 2020
• Ævintýranámskeið 2. 22.-26. júní 2020
• Ævintýranámskeið 3. 29. júní -3. júlí 2020
• Ævintýranámskeið 4. 6.-10. júlí 2020
• Ævintýranámskeið 5.* 13.-17. júlí 2020
• Ævintýranámskeið 6.* 4.-7. ágúst 2020
• Ævintýranámskeið 7.* 10.-14. ágúst 2020
• Smíðanámskeið 1. 15.-19.júní 2020
• Smíðanámskeið 2. 22.-26. júní 2020
• Smíðanámskeið 3. 29. júní -3. júlí 2020
• Smíðanámskeið 4. 6.-10. júlí 2020
• Smíðanámskeið 5. 13.-17. júlí 2020
• Smíðanámskeið 6. 4.-7. ágúst 2020
• Smíðanámskeið 7.* 10.-14. ágúst 2020
*með fyrirvara um næga þátttöku


Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!
Skátafélagið Vífill