Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar kl. 20.00 í Jötunheimum.
Dagskrá:
- Fundur settur
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Lögmæti fundarins og kjörgengi fundarmanna kannað
- Skýrsla stjórnar
- Skýrslur nefnda
- Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
- Kosning tveggja stjórnarmanna.
- Kosning skoðunarmanns reikninga
- Starfsáætlun ársins 2016 lögð fram
- Fjárhagsáætlun ársins 2016 lögð fram
- Önnur mál
Til fundarins eru boðaðir allir skátar í félaginu 16 ára og eldri. Stjórn BÍS og Íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar er boðið að senda áheyrnarfulltrúa á fundinn.