Skátafélagið Vífill

Aðalfundur skátafélagsins Vífils 24.2. 2016

Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar kl. 20.00 í Jötunheimum.

Dagskrá:

  1. Fundur settur
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Lögmæti fundarins og kjörgengi fundarmanna kannað
  4. Skýrsla stjórnar
    1. Skýrslur nefnda
  5. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
  6. Kosning tveggja stjórnarmanna.
  7. Kosning skoðunarmanns reikninga
  8. Starfsáætlun ársins 2016 lögð fram
  9. Fjárhagsáætlun ársins 2016 lögð fram
  10. Önnur mál

Til fundarins eru boðaðir allir skátar í félaginu 16 ára og eldri. Stjórn BÍS og Íþrótta- og tómstundaráði  Garðabæjar er boðið að  senda áheyrnarfulltrúa á fundinn.