Skátafélagið Vífill

SUMARNÁMSKEIÐ VÍFILS

SUMARNÁMSKEIÐ VÍFILS

Hvort sem þú ert upprennandi hallarsmiður, ævintýraþyrstur unglingur eða ungur útilífsunnandi, þá er í það minnsta óhætt að fullyrða að sumarið í Garðabæ sé ein stór barnahátíð! Skátafélagið Vífill er öflugt skátafélag sem heldur úti skemmtilegu skátastarfi yfir sumartíma jafnt sem vetrartíma. Í júní og júlí verða Ævintýra- og Smíðanámskeið og í ágúst verður Ævintýranámskeið.

Ævintýranámskeið (7-12 ára)
Farið er í ýmsar ferðir í nágrenni skátaheimilisins. Meðal annars í hellaferðir, veiðiferðir, fjöruferðir, fjallgöngur, hjólaferðir, sund og margt fleira. Börnin kynnast náttúrunni og læra að vera viðbúin þeim áhættuþáttum sem finnast í nútímaþjóðfélagi ásamt því að fara í þroskandi og uppbyggilega leiki. Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 30 börn.

Smíðavöllur (7-12 ára)
Á námskeiðinu fá börn að byggja leikkofa eða garðhús auk þess sem námskeiðið er brotið upp með sundferð. leikjum o.fl. Við lok námskeiðsins geta börnin tekið kofana með heim ef þau vilja. Smíðavellirnir hafa vera sérstaklega vinsælir undanfarin ár og aðsóknin oft verið meiri en hámarksfjöldi býður upp á. Til að tryggja pláss á námskeiði er því best að skrá smiði framtíðarinnar sem fyrst. Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 30 börn.

Upplýsingar: 
• Starfssvæði sumarnámskeiða Vífils er í og við Jötunheima, Bæjarbraut 7 í Garðabæ.
• Námskeiðin eru frá kl. 9-16.
• Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti klæddir eftir veðri og með nesti fyrir daginn. Gott er að eiga þurra sokka og aukabuxur í töskunni ef barnið er duglegt að kanna umhverfi sitt.
• Þátttökugjöld kr. 12.000 fyrir vikuna skal greiða við skráningu. Innifalið í verði er öll dagskrá, ferðakostnaður og sundferðir. Efniskostnaður smíðavallar er innifalinn í þátttökugjaldi. Skráning fer fram á; https://skatar.felog.is/ og opnar fyrir skráningu í dag 26. apríl. 
• Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að senda okkur erindi á sumar@vifill.is eða hafa samband í síma 565-8820 og 899-0089

Námskeiðsvikur: 
• Ævintýranámskeið 1 11.-14. júní 2019
• Ævintýranámskeið 2 18.-21. júní 2019
• Ævintýranámskeið 3 24.-28. júní 2019
• Ævintýranámskeið 4 1.-5. júlí 2019
• Ævintýranámskeið 5 8.-12. júlí 2019
• Ævintýranámskeið 6 15.-19. júlí 2019
• Ævintýranámskeið 7* 6.-9. ágúst 2019

• Smíðanámskeið 1 11.-14.júní 2019
• Smíðanámskeið 2 18.-21. júní 2019
• Smíðanámskeið 3 24.-28. júní 2019
• Smíðanámskeið 4 1.-5. júlí 2019
• Smíðanámskeið 5 8.-12. júlí 2019
• Smíðanámskeið 6 15.-19. júlí 2019
*með fyrirvara um næga þátttöku

Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!
Skátafélagið Vífill